Sláturtíðin hafin hjá SAH Afurðum á Blönduósi

Sláturtíðin hjá SAH Afurðum ehf. á Blönduósi hófst á mánudaginn sl. en kemst á fulla ferð í dag, 10. september. Samkvæmt Húna.is verða starfsmenn í húsinu um 115 í haust og eru um 75% af þeim af erlendu bergi brotnir. Ráðgert fyrir því að slátra á bilinu 105-110 þúsund fjár en í fyrra slátraði SAH um 106 þúsund fjár.

Sigurður Jóhannesson, framkvæmdastjóri SAH Afurða ehf., segir í samtali við Húna að innanlandsmarkaðurinn hafi stækkað nokkuð á síðasta ári og vonast hann til að hann haldi áfram að stækka.

„Verð hefur hins vegar ekki hækkað mikið innanlands og flestir erlendir markaðir eru lakari en í fyrra“ segir Sigurður.

Til þess að sláturvertíðin gangi vel þarf að sækja fé víða að en sex bílar sjá um að sækja fé til slátrunar; allt til Kelduhverfis í austri, Dýrafjarðar í vestri, Borgarfjarðar og að sjálfsögðu Eyjafjörður, Skagafjörður og Húnavatnssýslurnar.

Fleiri fréttir