Slegið í góða veðrinu
Í góða veðrinu á föstudag var verið að slá og gera fínt á flötinni fyrir sunnan Spákonuhofið á Skagaströnd en þar voru að verki röskir unglingar í vinnu hjá sveitarfélaginu með sláttuvélar og amboð af ýmsu tagi. Guðlaugur Ómar var einn þeirra og var hann ánægður með veðrið þann daginn.
Guðlaugur segir að þau séu um tíu í eldri hópnum en eru eitthvað fleiri hjá þeim yngri sem eru í vinnuskólanum en þar eru grunnskólabörnin að starfa. Helstu verkefni hjá Guðlaugi og félögum hefur verið auk þess að slá, halda ýmsu við í bænum og laga málningu á húsum o.fl. Segir hann vinnuna eins og hverja aðra vinnu, stundum skemmtilega en geti líka verið leiðinleg. Hann var ánægður með veðrið undanfarna daga en þótti það hræðilegt í júní enda ekki hægt að hrópa húrra fyrir því. Guðlaugur hefur trú á því að sumarið sé komið og haldist gott fram yfir Kántrýdaga eða um miðjan ágúst en þá lýkur sumarvinnunni hjá Guðlaugi og félögum hjá sveitarfélaginu og önnur verkefni taka við.