„Slow Travel í A-Hún“
Súpu og kynningarfundur vegna samstarfsverkefnis „Reshape your journey - slow travel í A-Hún“ verður haldinn fimmtudaginn 26. mars nk. á Hótel Blönduós, kl. 17:00. Verkefnið hlaut styrk úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra.
Samstarfsaðilar verkefnisins eru Ferðamálafélag A-Hún, Byggðarsamlag í A-Hún, Þekkingarsetrið á Blönduósi, auk ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Kl. 17:00 Kynning á Vaxtarsamningsumsókninni „Reshape your journey- slow travel í A-Hún“- Hildur Þóra Magnúsdóttir atvinnuráðgjafi SSNV
Kl. 17:30 Hvað er „slow travel“ og hvernig getum við í A-Hún hagnast á því?- Ásgerður Einarsdóttir, ferðamálafrömuður í hæglætisferðamennsku
Kl. 18:30 Súpa og brauð í boði Ferðamálafélagsins
Kl. 19:00 Hugarflugsvinna um tækifærin
Kl. 20:00 Fundarslit
Fundurinn er opinn ferðaþjónustuaðilum, sveitarstjórnarmönnum, handverksfólki, veitingaaðilum og öðrum fyrirtækjum sem þjónusta ferðamenn. Skráning fer fram á netfanginu hildur@ssnv.is.