Smábæjaleikar 2013 í fullum undirbúningi
Undirbúningur er hafinn á Smábæjaleikum Arion banka 2013 á Blönduósi en mótið verður dagana 22. – 23. júní og verður keppt í 4.5. og 6. flokki karla og kvenna og 7. flokki blandað lið. Samkvæmt heimasíðu Hvatar er mótið hugsað fyrir minni bæjarfélög þó einhverjar undantekningar hafi verið gerðar á því.
Dagskráin hefst á föstudeginum 21. júní en keppnin svo daginn eftir. Þátttökugjald er það sama og í fyrra eða 8.500 fyrir keppendur en innifalið í verðinu er gisting í eina eða tvær nætur, allar máltíðir, sundferð og öll önnur afþreying á vegum mótsins. Allar nánari upplýsingar fást hjá mótsstjóra í síma 690-0642 eða á netfanginu eysteinnp@simnet.is.
Skráningarblað leikanna er komið inn á netið heimasíðu Hvatar undir Smábæjaleikar 2013.