Smábæjarleikar hefjast í dag
Smábæjaleikar Hvatar á Blönduósi, sem í ár kallast Smábæjaleikar Arion banka og SAH Afurða og Kjarnafæðis, hefjast í dag laugardaginn 23. júní og standa yfir fram á miðjan dag sunnudag.
„Nú er búið að setja þjálfaramöppuna inn á netið og leikjaplanið er einnig komið inn,“ segir á heimasíðu Hvatar.
Mótið verður sett kl. 8:50 á íþróttavellinum en knattspyrnu leikir hefjast kl. 9 samkvæmt leikjatöflu. Kvöldskemmtun verður á íþróttavellinum um kvöldið og munu Friðrik Dór og Jón Jónsson koma þar fram.
Miðnæturopnun verður í sundlauginni til kl. 01 á laugardagskvöldinu fyrir foreldra, fararstjóra, forráðamenn og aðra gesti Smábæjaleikanna, hætt verður að að hleypa ofaní laugina kl. 00:30.
Á sunnudeginum hefjast knattspyrnuleikir á ný kl. 9 og kl. 12 verður pyslugrill á vallarsvæðinu. Áætluð mótslok verða svo kl. 15:30 og þá fer fram verðlaunaafhending.