Smalamaður fannst eftir nokkra leit
Allar björgunarsveitir í Skagafirði voru kallaðar út rétt um kl 9 í gærkvöldi vegna leitar að manni innst í Skagafirði í nágrenni Þorljótsstaða. Viðkomandi fór með öðrum manni í fjárleitir um morguninn og ætluðu þeir að hittast við upphafsstað seinnipart dags.
Á Bjargari.is vef Skagfirðingasveitar segir að þegar maðurinn skilaði sér ekki hóf samferðafélagi mannsins eftirgrennslan en komst ekki upp fjallið vegna veðurs. Óveður var á svæðinu, mikið rok og skafrenningur og lítið skyggni. Allflestar björgunarsveitir í nágrenni voru einnig settar í viðbragsstöðu ásamt sveitum á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn fannst síðan heill á húfi í kringum miðnætti um 7km frá Stafnsvötnum.