Smáskipanám hjá FNV

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki mun bjóða upp á smáskipanám á vorönn 2013, en námið hefst þann 15. des. ef næg þátttaka fæst. Smáskipanámskeið kemur í stað gamla „pungaprófsins“ sem gaf skipstjórnarréttindi upp á 30 brúttólestir.

Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar:

  • Siglingafræði og samlíkir SIG 102 2 ein.
  • Slysavarnir SLY101 1 ein.
  • Siglingareglur og sjóréttur 16 kst.
  • Siglingatæki og fjarskipti 25 kst.
  • Skipahönnun og vélfræði 6 kst.
  • Stöðugleiki og skipstjórn 12 kst.
  • Veðurfræði og umhverfisvernd 7 kst.

Kenndar verða 115 kennslustundir um kvöld og helgar og er námskeiðsgjald kr. 105.000. Skráningarfrestur er til 10. desember. Í tilkynningu frá skólanum segir að þeir sem áður hafi sýnt náminu áhuga þurfi að staðfesta skráningu.

Nánari upplýsingar og skráning í síma 455-8000 eða á skrifstofu skólans.

Fleiri fréttir