Smásögur óskast í Nokkur lauf að norðan III
Töfrakonur hafa ákveðið að fyrir næstu jól komi út smásagnasafn sem ber heitið Nokkur lauf að norðan III. Eins og áður höfum við hugsað okkur að höfundar eða sögurnar tengist á einhvern hátt hér norður. Höfundar geta átt rætur hér eða búsetu, hugmyndir komið héðan að norðan eða sögur gerst á norðurlandinu að hluta eða í heild. Að öðru er leyti frelsi með efnisval og lengd en æskilegt er þó að halda lengdinni innan eðlilegra marka.
Síðastliðin tvö ár höfum við gefið út smásagnasöfn undir nöfnunum Nokkur lauf að norðan og Nokkur lauf að norðan II. Nú er hugmyndin að ljúka þessum smásögu þríleik og gefa út Nokkur lauf að norðan III og er það einlæg von okkar að vel takist til og hún innihaldi enn fleiri sögur og höfunda en hinar fyrri.
Töfrakonur skora á ykkur að setjast niður og skrifa smásögur og senda okkur, helst sem fyrst. Við höfum hugsað okkur að allra síðasti skiladagur væri 15. maí og þá verður hafist handa að velja sögur, prófarkalesa og setja saman. Við vonumst til að þið hjálpið okkur að klára þetta verkefni okkar sem vonandi verður til þess að smásögurnar geymist vel og séu lesnar. Við erum afar þakklátar fyrir viðbrögð og stuðning við hinar fyrri bækur og biðlum til ykkar nú enn á ný. Með fyrirfram þökk frá okkur Töfrakonum.
Vinsamlegast sendið á eitthvað af eftirtöldum netföngum. Birgitta: langamyri@emax.is - Jóhanna: brandsstadir@emax.is - Þuríður: tury.moa@simnet.is . Vanti frekari upplýsingar er hægt að skrifa á þessi netföng eða hringja í síma 4527119 hjá Birgittu, 4527140 hjá Jóhönnu og 5535218 hjá Þuríði.
Góða skemmtun og gangi ykkur vel.
/ Orðsending frá Töfrakonum/Magic Women ehf.