Snilldarlausnir Marel 2014

Hugmyndasamkeppnin Snilldarlausnir Marel 2014 er hafin. Keppnin gengur út á það að framhaldsskólanemar finna einföldum hlut aukið virði með nýju notagildi. Þetta árið er flaska hlutur ársins. Notagildið eiga nemendur að taka upp á myndband og senda í keppnina.

Vegleg verðlaun eru í boði, en andvirði verðlauna er um 400.000 krónur. Má þar nefna iPad mini frá iSímanum, 100.000 krónur í peningum ásamt gjafakörfu frá Ölgerðinni fyrir Snilldarlausnina 2014. Skilafrestur er til mánudagsins 3.mars.
Allar frekari upplýsingar má finna á www.snilldarlausnir.is

Fleiri fréttir