Snjóaði í fjöll í nótt

Kalt hefur verið á Norðurlandi undanfarið og í nótt snjóaði víða í fjöll. Samkvæmt spá Veðurstofunnar getur haldið áfram að snjóa eða slydda með norðvestan 5-13 m/s og hvassast á annesjum en síðdegis lægir og fer að létta til. Á morgun verður sunnan 8-15 og rigning eða súld með köflum með hita upp á 3 til 8 stig, en 8 til 14 á morgun.

Á miðvikudag:
Sunnan 8-13 m/s, en 13-18 við fjöll á V-verðu landinu. Rigning eða súld S- og V-lands. Þurrt á NA- og A-landi, en þykknar upp með dálítilli rigningu þar síðdegis. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á fimmtudag:
Sunnan og suðaustan 5-13 m/s. Rigning eða súld S- og V-til á landinu, en bjartviðri á N- og A-landi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast NA-lands.

Á föstudag:
Austan 5-13 m/s, hvassast með S-ströndinni. Rigning, en þurrt að kalla á N-landi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á laugardag:
Snýst í norðaustnaátt með rigningu N- og A-til, en skúrir S- og SV-lands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast syðst.

Á sunnudag:
Norðan- og norðvestanátt og rigning á N- og A-landi, en léttskýjað S- og V-lands. Hiti frá 6 stigum við N-ströndina, upp í 18 stig á SA-landi.

Á mánudag:
Útlit fyrir suðaustan- og austanátt með rigningu, en úrkomulítið N-til á landinu.

Fleiri fréttir