Snjókarlagerð í Blönduskóla

Myndarlegur snjókarl á lóð Blönduskóla. Mynd: blonduskoli.is.
Myndarlegur snjókarl á lóð Blönduskóla. Mynd: blonduskoli.is.

Snjórinn á sér ýmsar birtingarmyndir og nóg hefur verið af honum undanfarna daga. En öll él birtir upp um síðir og þá er gaman að bregða sér út og sjá hvernig snjórinn hefur breytt umhverfinu. Líkt og náttúruöflin getur mannshöndin breytt snjónum í listaverk eins og krakkarnir í Blönduskóla gerðu á dögunum.

Fleiri myndir af húnvetnskum snjókörlum er að finna á vefsíðu Blönduskóla sem birtir reglulega skemmtilegar myndir úr skólastarfinu.

Fleiri fréttir