Snjókoma í kortunum
Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri suðlægri átt, skýjuðu að mestu á Ströndum og Norðurlandi vestra fram á morgundaginn og yfirleitt úrkomulaust. Suðaustan 5-13 undir kvöld og þykknar upp en fer að snjóa seint í nótt. Vestlægari og éljagangur á morgun. Frost 1 til 8 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Vestlæg átt, 8-13 m/s SV- og V-lands, en suðaustan 5-10 annars staðar. Víða snjókoma eða él, en úrkomulítið á NA-verðu landinu til kvölds. Frost 0 til 8 stig, mest inn til landsins.
Á föstudag:
Gengur í SA 10-18 m/s, hvassast SV-lands. Snjókoma í fyrstu, en síðan slydda eða rigning. Úrkomulítið á N- og A-landi. Víða frostlaust S- og V-lands um kvöldið og minnkandi frost annars staðar.
Á laugardag (gamlársdagur):
Suðvestan 5-13 m/s, hvassast V-til á landinu. Skúrir eða slydduél og hiti 0 til 5 stig, en suðlægari og úrkomulaust NA-til og vægt frost.
Á sunnudag (nýársdagur), mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir breytilega átt og él í flestum landshlutum. Frost víða 0 til 6 stig.
Spá gerð: 27.12.2011 20:26. Gildir til: 03.01.2012 12:00.