Snjókoma í kvöld

Um Norðanvert landið er snjóþekja og hálka. Sunnan gola og þurrt verður á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag en rigning síðdegis. Hiti 0 til 5 stig. Norðvestan 8-13 og snjókoma í kvöld, en suðvestan 10-15 og él á morgun. Hiti um frostmark.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:

Suðvestanátt, víða 10-15 m/s og él, en léttskýjað A-lands. Hægari um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig við S- og A-ströndina, annars vægt frost.

Á föstudag:

Snýst í norðan 5-13 m/s með dálitlum éljum. Léttir til S-lands síðdegis. Hiti 0 til 5 stig syðst, annars víða 0 til 5 stiga frost.

Á laugardag:

Sunnan- og suðvestanátt. Rigning eða slydda og hlýnandi í bili, en snjókoma með köflum NA-til á landinu.

Á sunnudag:

Vestlæg átt og rigning í fyrstu S-til, annars víða slydda eða snjókoma. Kólnar í veðri.

Á mánudag og þriðjudag:

Breytileg átt, víða él og kalt í veðri.

Fleiri fréttir