Snjókoma og skafrenningur

Lítið lát er á ofanhríðinni með skafrenningsskófi norðanlands í dag. Víða er hálka á vegum, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur nú um níu leytið, samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Snjókoma og norðan og norðvestan 10-18 m/s er á Ströndum og Norðurlandi vestra, hvassast á annesjum. Frost 0 til 5 stig.

Dregur úr vindi og úrkomu á morgun og hlýnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Norðan og norðaustan 13-18 m/s og snjókoma eða éljagangur N- og A-lands, en annars bjartviðri. Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Frost víða 0 til 8 stig, en frostlaust S-lands að deginum.

Á miðvikudag:

Norðaustan 8-13 m/s og skýjað með köflum. Lítilsháttar slydduél syðst, en él með N- og A-ströndinni. Frost 0 til 5 stig en hiti 0 til 5 stig SV-til yfir daginn.

Á fimmtudag og föstudag:

Austlæga eða breytileg átt og dálítil él víða á landinu, síst þó NA-til. Áfram svalt í veðri.

Á laugardag og sunnudag:

Útlit fyrir allhvass austanátt með ofankomu SV-til, en annars úrkomulítið. Fremur svalt veður.

Fleiri fréttir