Snjólaug bætti Íslandsmet sitt

Feyki berast reglulega fréttatilkynningar frá því öfluga félagi Markviss á Blönduósi. Er það ætíð vel þegið þegar einstaklingar, fyrirtæki og félög láta vita af því sem um er að vera á svæðinu, því að þrátt fyrir góðan vilja ná blaðamenn aldrei að fylgjast með því öllu.

Um síðustu helgi fór fram Norðurlandsmót í leirdúfuskotfimi á Blönduósi. Þrátt fyrir fámenni tókst mótið vel og komu keppendur frá fimm félögum. Skor keppenda á mótinu var í lægri kantinum ef undan eru skilin þau Snjólaug M. Jónsdóttir, formaður Markviss, sem bætti Íslandsmet sitt í kvennaflokki um heilar fimm dúfur og unglingurinn Sigurður Unnar Hauksson frá Húsavík sem var langefstur eftir undankeppnina.

Guðlaugur Bragi Magnússon frá Skotfélagi Akureyrar varð hlutskarpastur eftir sigur í bráðabana gegn Sigurði Unnari frá Skotfélagi Húsavíkur, þriðji varð Guðmann Jónasson Skotfélaginu Markviss eftir sigur í bráðabana gegn Sigurði Áka Sigurðssyni Skotfélagi Akureyrar.

Skotfélagið Markviss var eina félagið sem sendi lið í liðakeppnina að þessu sinni og var því auðunninn sigur þar, að auki vann Sverrir Snær Ingimarsson sigur í byrjendaflokki og eins og áður kom fram setti Snjólaug M. Jónsdóttir Íslandsmet í kvennaflokki.

Nú eru aðeins tvö mót eftir á mótaskrá Skotíþróttasambands Íslands, Reykjavík OPEN í lok ágúst og Bikarmeistaramót í Hafnarfirði 7-8 september, en þar munu keppendur Skotfélagið Markviss standa í ströngu en Snjólaug María er efst að stigum í kvennaflokki og Guðmann Jónasson er í öðru sæti í karlaflokk, því eru allnokkrar líkur á að annar ef ekki báðir bikarmeistaratitlarnir geti náðst á Blönduós ef vel gengur á bikarmótinu.

 

Fleiri fréttir