Snjór og læti
Það er óhætt að segja að haustlægðirnar minni á sig þessa dagana og miklar rigningar á láglendinu og hvít fjöll beri því vitni hér norðvestanlands en snjór er víða niður fyrir miðjar hlíðar og sumstaðar niður í byggð. Krapi og snjór gerði sig heimakomin á Þverárfjalli og Vatnsskarði en ekki fara neinar sögur af óhöppum vegna þess.
Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir áframhaldandi norðanátt 10-13 m/s og dálítilli rigningu eða slyddu, en 5-10 í nótt og á morgun og þurrt að mestu. Hiti 2 til 7 stig, en við frostmark í innsveitum í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðaustan 8-13 m/s og skýjað með köflum, en 13-18 og fer að rigna SA-lands um kvöldið. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast SV-til.
Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Ákveðin norðaustanátt og víða rigning, en úrkomulítið SV-til. Fremur hlýtt veður, einkum S-lands.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir hæga austlæga átt með skúrum í flestum landshlutum. Áfram milt í veðri.
Athugasemd veðurfræðings
Búast má öskufoki syðst á landinu í dag. Einnig má búast við hvössum vindstrengjum við fjöll austantil á landinu fram yfir hádegi.