Snjóþekja eða hálka á vegum

Á Norðurlandi vestra er snjóþekja eða hálka á vegum en þæfingur, hálka og skafrenningur er frá Ketilási í Siglufjörð. Norðan 8-13 m/s og dálítil él er í landshlutanum, en hægari og léttir heldur til síðdegis. Vaxandi sunnanátt og þykknar upp á morgun. Frost 1 til 6 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Suðlæg átt, 8-13 m/s, víða bjartviðri og talsvert frost, en hvessir og þykknar upp seinni partinn, slydda eða snjókoma V-til um kvöldið og hlýnar heldur í veðri.

Á miðvikudag:

Suðvestan 10-18 m/s, hvassast NV-til. Él á V-verðu landinu, en úrkomulítið fyrir austan. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust við sjóinn.

Á fimmtudag:

Allhvöss suðvestanátt og dálítil slydda eða rigning, en þurrt að mestu A-lands. Hiti 0 til 7 stig.

Á föstudag:

Suðvestanhvassviðri, skúrir eða él og kólnar í veðri.

Á laugardag:

Ákveðin vestanátt, slyddu eða snjókomu með köflum og fremur svalt í veðri.

Á sunnudag:

Útlit fyrir suðvestanátt með rigningu, einkum S- og V-lands og hlýnar.

Fleiri fréttir