Snjóþekja og hálka á flestum vegum
Það snjóar víða á Norðurlandi en veður er stillt. Snjóþekja eða hálka er því á flestum vegum. Verið er að opna Öxnadalsheiði. Norðaustan 3-8 er á Ströndum og Norðurlandi vestra, skýjað og stöku él.
Austlæg átt og lítilsháttar snjókoma í nótt en vaxandi suðvestanátt, 10-15 síðdegis og rigning. Vægt frost en hlýnar á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Suðvestan- og vestan 10-18 m/s, rigning eða slydda og hlýnandi í bili. Hægari suðaustanátt og snjókoma NA-til fram eftir degi. Dregur víða úr vindi og úrkomu um kvöldið og kólnar.
Á sunnudag:
Vestlæg átt 8-15 m/s, en hægari nyrst. Víða él, en úrkomulítið á SA-landi og Austfjörðum. Hiti 0 til 4 stig við við ströndina en frost 0 til 7 stig inn til landsins, kaldast N-til.
Á mánudag:
Norðan 5-13 m/s og snjókoma eða él um landið N-vert, en bjart á köflum S-lands. Frost 0 til 8 stig, mest inn til landsins.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Austlæg átt og snjókoma eða slydda með köflum, einkum um landið S- og A-vert en úrkomulítið á Vesturlandi. Áfram kalt í veðri.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir vaxandi norðaustanátt með éljum við norður og austurströndina en bjartviðri annars staðar og harðnandi frosti.