Snyrtu umhverfið á degi íslenskrar náttúru

Mynd:hofdaskoli.is
Mynd:hofdaskoli.is

Dagur íslenskrar náttúru var haldinn hátíðlegur sl. mánudag, 16. september, og af því tilefni voru  einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Í tilefni dagsins vörðu allir nemendur Höfðaskóla á Skagaströnd tíma úti við og unnu verkefni af ýmsum toga. Nemendur unglingastigs tóku sig til og tíndu rusl í nágrenni skólans.

Meðfylgjandi mynd, sem birtist á vef skólans, sýnir ruslið sem safnaðist á einni klukkustund.  Vilja nemendur hvetja bæjarbúa til að henda ekki rusli á víðavangi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir