Söfnun á rúlluplasti í Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að dagana 2. - 3. maí nk. fari fram söfnun á rúlluplasti í hreppnum. Byrjað verður í Svartárdal og haldið vestur.
„Þeir aðilar sem ætla að koma rúlluplasti á söfnunaraðila verða að gæta þess að plastið sé tilbúið til flutnings og hæft til endurvinnslu. Plastið verður að vera þokkalega hreint og í því mega ekki vera aðskotahlutir s.s. net eða heyafgangar,“ segir á heimasíðu hreppsins
Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu vinsamlegast tilkynni það til skrifstofu Húnavatnshrepps fyrir 2. maí, í síma 452-4660/ 4661, eða á netföngin: hunavatnshreppur@emax.is eða jens@emax.is.