Söfnun fyrir fjölskyldu Hönnu Lísu
Efnt hefur verið til söfnunar til aðstoðar Þorgerði Þóru Hlynsdóttur og fjölskyldu vegna andláts Hönnu Lísu Hafliðadóttur sem lést aðfaranótt þriðjudags. Fjölskyldan gengur nú í gegnum erfiðleika sem orð fá ekki lýst en hægt er að aðstoða með því að létta undir þeim á þessum erfiðu tímum.
Samvkæmt heimasíðu Húnahornsins sendu aðstandendur söfnunarinnar frá sér tilkynningu þar sem þau biðja fólk um að leggja inn á söfnunarreikning í Landsbankanum á Skagaströnd til að hjálpa fjölskyldunni í gegnum kostnaðinn sem fylgir útför og þess háttar.
Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta haft haft samband við Landsbankann á Skagaströnd, eða lagt inn á reikning: 0161-05-070329, kennitala: 010468-3459.