Sögufundur á Skagaströnd
Sögufélagið Húnvetningur heldur næsta fund sinn á Skagaströnd laugardaginn 24. mars (annan laugard.) kl. 14 og þar mun Þorlákur Axel Jónsson sagnfræðingur segja frá ráni Hollendinga á Skagaströnd 1686. Grafist er fyrir um ástæður þessa atburðar, farið yfir samskipti Hollendinga og Íslendinga á 17. öld og skoðað hvernig verslunarstaður á borð við Höfðakaupstað birtist í tiltækum hollenskum heimildum.
Einnig verður fjallað um hvernig verslunarstaður Höfði var og þýðing hans fyrir íbúa svæðisins verður krufin. Sýndar verða myndir með skjávarpa og gestum gefst tækifæri til þess að bera fram fyrirspurnir.
Fyrirlesarinn, Þorlákur Axel Jónsson, er kennari við Menntaskólann á Akureyri. Hann er stúdent frá MA 1983, tók BA-próf við HÍ 1987 og lauk cand. mag. prófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1994. Ritgerð hans heitir: Statsmagt og byutvikling í Reykjavík 1750-1850. Fræðasvið Þorláks Axels er Íslandssaga, bæjasaga og saga ríkisvalds.
Þessi fundur sögufélagsins verður á Skagaströnd eins og áður sagði, hjá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands að Einbúastíg 2.
Fyrirlestur Þorláks Axels hefst kl. 14, síðar verður boðið upp á kaffi og aðalfundur félagsins verður að því loknu.