Söguleg safnahelgi hefst á morgun
Söguleg safnahelgi hefst á morgun með opnu húsi og sérstakri dagskrá hjá fjölmörgum söfnum og setrum á Hvammstanga, Laugarbakka, Blönduósi, Skagaströnd og í Skagafirði.
Verkefnið er í tengslum við Huggulegt haust sem er á vegum ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi vestra, ásamt söfnum og setrum á svæðinu. Með verkefninu er vonast til að vekja sérstaka athygli á því sem svæðið hefur upp á að bjóða á haustin. Á Sögulegri safnahelgi verður fjölbreytt framboð afþreyingar og ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi. Þeir sem heimsækja að minnsta kosti fjögur söfn geta átt von á að vinna til glæsilegra vinninga.
Þau söfn sem taka þátt í safna- og setrahelginni á Norðurlandi vestra eru:
- Árnes, elsta hús á Skagaströnd
- Þar er hægt að skoða sýninguna alþýðuheimili 1900-1920. Opið á laugardag kl. 13-17
- Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbæ
- Í Glaumbæ er sýning um mannlíf í torfbæjum og í 19. aldar húsum sem standa við Glaumbæ. Opið laugardag frá 13-17.
- Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði
- Í safninu verður boðið upp á kaffi og með því fyrir svanga og þyrsta og andlegt fóður fyrir fróðleiksfúsa. Opið verður bæði laugardag og sunnudag frá 13-17.
- Eyvindarstofa, Pottinum á Blönduósi
- Eyvindarstofa verður formlega opnuð kl. 14 á laugardeginum, sjá nánar hér. Einnig verður opið frá 11-22 á sunnudeginum.
- Grettisból á Laugarbakka í Miðfirði
- Opið hús verður bæði laugardag og sunnudag kl. 13-17. Heitt verður á tekatlinum, barnatjald með leikföngum og víkingabúningum. Þar verður hægt að kaupa handverk og matvæli úr héraði. Sérstaklega er bent á nýútkomna bók um sögu Grettis, með myndum eftir Halldór Pétursson.
- Hafíssetrið á Blönduósi
- Boðið verður upp á kaffi og leiðsögn um setrið, laugardag og sunnudag frá 13-17. Stefán Haraldsson verður með leiðsögn um gamla bæinn kl. 14 á sunnudaginn.
- Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
- Opið hús verður laugardag og sunnudag, frá kl. 13-17 . Laugardaginn kl. 15 mun Alexandra Chernyshova heimsækja safnið, taka lagið og kynna nýja geisladiskinn sinn „Aðeins þú“. Hún mun einnig hafa diskinn til sölu en með honum fylgir afar falleg ljósmyndabók „Ljós og náttúra Skagafjarðar“ eftir Jón Hilmarsson. Nú eru síðustu forvöð að sjá yfirlitssýningu Guðrúnar J. Vigfúsdóttur, veflistakonu „Úr smiðju vefarans mikla“. Innifalið í aðgangseyri eru dagskráratriði og kaffi og kleinur.
- Kántrýsetrið á Skagaströnd
- Opið hús laugardag og sunnudag, frá kl. 13-17.
- Kvennaskólinn á Blönduósi
- Opið hús verður laugardag og sunnudag frá kl. 13-17.
- Aðalbjörg Ingvarsdóttir verður með leiðsögn um skólann.
- Langafit-handverkshús á Laugarbakka
- Opið hús verður laugardaginn frá kl. 13-17.
- Nes Listamiðstöð á Skagaströnd
- Opið hús verður laugardaginn kl. 13-17.
- Selasetur Íslands á Hvammstanga
- Opið hús verður laugardaginn kl. 13-17.
- Háskólasetrið í Kvennaskólanum á Blönduósi
- Opið hús verður laugardaginn kl. 13-17.
- Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra á Skagaströnd
- Nú er tækifæri til að bera augum húsakynni Rannsóknarsetursins í fyrsta sinn, þó formelg opnun þess verður ekki fyrr en næsta vor. Opið hús verður laugardaginn frá kl. 13-17 og kl. 13-15 mun Reynir Þór Eggertsson bregða á leik og vera með skemmtilegt námskeið fyrir unga og aldna um íslenska handritamenningu. Kl. 16-17 segir Emily Lethbridge frá ferðalagi sínu um Ísland á gömlum sjúkrabíl, þar sem hún las Íslendingasögurnar á þeim stöðum sem þær áttu sér stað. Einnig verður sýnd heimildarmynd um ferðalagið sem unnið var af Patrick Chadwick.
- Spákonuhof á Skagaströnd
- Þar er boðið upp á sögusýningu um Þórdísi spákonu. Einnig verður spáð í spil og lesið í lófa, bolla og rúnir. Opið verður laugardag og sunnudag frá kl. 13-17.
- Textílsetur Íslands á Blönduósi
- Opið hús verður báða dagana á milli kl. 13-17. Á laugardeginum verður fólki boðið upp á að setja spor sitt í söguna með því að sauma í refilinn, sem segir frá Vatnsdælasögu. Þórhallur Barðason, söngvari mun lesa upp söguna á meðan útsaumnum stendur.
- Verslunarminjasafnið á Hvammstanga
- Verslunarminjasafnið er í gömlu pakkhúsi sem inniheldur minjar frá krambúð Sigurðar Davíðssonar. Þar er einnig sala á fjölbreyttu handverki frá svæðinu.
- Opið hús verður laugardag og sunnudag frá kl. 11-17.
- Þingeyrarkirkja
- Opið verður laugardag og sunnudag frá 13-17, án endurgjalds.
Á heimasíðunni huggulegthaust.is má finna nánari upplýsingar verkefnið sem unnið er í samstarfi við SSNV atvinnuþróun og styrkt af Menningarráð Norðurlandi vestra.