Sóknarhugur í Ferðamálafélagi A-Hún.

Eins og kunnugt er stendur Ferðamálafélag Austur Húnavatnssýslu nú fyrir átaki til að efla ferðaþjónustu í sýslunni. Liður í þessu átaki er að láta hanna og prenta veglegan kynningarbækling.  Í bæklingnum verður margs konar fróðleikur um sýsluna, s.s um náttúrufar, atvinnulíf, mannlíf, menningu, söguna og umhverfið. Auk þess fylgir bæklingnum veglegt kort af svæðinu.

Bæklingurinn er fyrst og fremst ætlaður sem þjónusta við ferðamenn en einnig sem almenn kynning á svæðinu og kostum þess. Textinn verður á ensku, þýsku og íslensku. Áætlað upplag er 10.000 eintök sem koma úr prentun í maí nk.

Bæklingnum verður dreift á helstu ferðamannastaði og til þjónustuaðila á Norðurlandi vestra. Hann mun einnig liggja frammi hjá upplýsingamiðstöðum um land allt, ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum. Þjónustuaðilar geta nýtt bæklinginn og dreift honum með sínu kynningarefni. Svipaðir bæklingar hafa verið gefnir út áður, m.a. um Húnaþing vestra. Þessi ágæti bæklingur er fjármagnaður með auglýsingatekjum og hefur auglýsingasöfnun gengið vonum framar. Enn er þó möguleiki á að tryggja sér auglýsingapláss en söfnun auglýsinga lýkur mánudaginn 3. mars. Umsjón með auglýsingum hefur Nýprent á Sauðárkróki.

Þrátt fyrir að bæklingurinn fjalli eingöngu um A-Hún., þá er áhersla lögð á þá staðreynd, að við erum fyrst og fremst hluti af Norðurlandi.  Enn sem komið er  hefur ekki verið ákveðið hvað króginn á að heita og eru ábendingar og hugmyndir vel þegnar! Tillögur sendist í tölvupósti á agustp@centrum.is.

Fjölmörg áhugaverð verkefni litið dagsins ljós 

Ýmislegt fleira er í gangi til að efla ferðaþjónustu og handverk í sýslunni. Til að auka samstarf  á milli aðila og auka framboð í ferðaþjónustu var m.a. sett á laggirnar sérstök hugmyndasmiðja. Þar hittist hópur fólks á fimmtudagskvöldum og vinnur í því að finna og þróa nýjar hugmyndir eða efla starfsemi sem nú þegar er fyrir hendi. Fjölmörg áhugaverð verkefni hafa nú þegar litið dagsins ljós og er unnið hörðum höndum að þróun þeirra. Ef einhver vill bætast í hópinn, þá hafið samband við Ágúst, sem er verkefnisstjóri átaksins og verkstjóri í hugmyndasmiðjunni, í síma 896-3055.

Þekkingarsetrið á Blönduósi er aðili að átaksverkefninu og hefur verið ákveðið að gera rannsókn í tengslum við átakið, þar sem  ætlunin er að kanna upplifun ferðamanna sem koma á svæðið og ástæður fyrir dvöl þeirra. Þetta er nauðsynlegt að vinna í nánu samstarfi við ferðaþjónustuaðila á svæðinu enda munu þeir  koma til með að fá gagnlegar upplýsingar fyrir eigin starfsemi.

Þá hefur ferðamálafélagið, ásamt nokkrum ferðaþjónustuaðilum í sýslunni, tekið þátt í tveimur ferðasýningum. Var þar annars vegar um að ræða stóra sýningu í Reykjavík þar sem þátttakendum í markaðsskrifstofum um allt land gafst kostur á að kynna þjónustu sína fyrir öllum helstu ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum á landinu.

Af okkar svæði tóku þátt, auk Ferðamálafélagsins: Laxasetur Íslands, Spákonuhof á Skagaströnd, Potturinn restaurant, Glaðheimar, Galsi hestaleiga og sundlaugin á Blönduósi. Þarna komu u.þ.b. 600 gestir og voru menn sammála um að þetta hafi verið afar gagnlegt fyrir ferðaþjónustuna á okkar svæði enda kom í ljós ferðaskrifstofur eru margar nánast að leita að svæðum sem ekki eru nánast yfirfull af ferðamönnum. Raunar höfðu margir alls ekki áttað sig á því hversu mikið okkar svæði hefur uppá að bjóða! Seinni sýningin var smærri í sniðum og var einungis hugsuð fyrir aðila í Markaðsskrifstofu Norðurlands. Sú sýning var á Akureyri og nýtti Ferðamálafélagið sér tækifærið til að kynna okkar svæði fyrir hópi af dönsku ferðaskrifstofufólki. Ferðamálafélagið telur mikilvægt að vinna náið með Markaðsskrifstofu

Norðurlands og er fólk þar á bæ ætíð reiðubúið til að aðstoða ferðaþjónustuaðila á okkar svæði við sína markaðssetningu. Því er um að gera að senda þeim alls konar upplýsingar, texta, myndefni o.fl. og er því þá komið á framfæri með ýmsum hætti.

/Fréttatilkynning frá Ferðamálafélagi A-Hún.

Fleiri fréttir