Sóldís með tónleika í Blönduósskirkju

Kvennakórinn Sóldís heldur tónleika í Blönduósskirkju laugardaginn 5. mars nk. kl. 20:30. Söngstjóri er Sólveig Sigríður Einarsdóttir og undirleikari Rögnvaldur Valbergsson.

Óhætt er að segja að hinn nýstofnaði kvennakór hafi fengið góðar viðtökur en fyrstu tónleikar hans fóru fram nýverið í Menningarhúsinu Miðgarði á konudaginn við mikinn fögnuð áheyrenda. Um 40 konur starfa með kórnum sem undanfarið hefur æft tvisvar í viku. Flestar búa þær í Skagafirði en fimm þeirra eru úr Austur-Húnavatnssýslu.

Miðaverð er  kr. 1.500 en ekki er tekið við kortum.

Fleiri fréttir