Sólgarðar til nýrra leiguaðila í sumar

Séð inn til Barðs og Sólgarða.
Séð inn til Barðs og Sólgarða.

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar hefur ákveðið að ganga til samninga við Kristínu Sigurrós Einarsdóttur og Alfreð Símonarson um leigu Sólgarðaskóla í Fljótum og annast umsjón með sundlauginni á Sólgörðum. Ferðaþjónusta hefur verið rekin á Sólgörðum á sumrin en skóli á vetrum og Svf. Skagafjörður rekur sundlaugina árið um kring.

Ákveðið var að auglýsa opinberlega eftir aðilum til að leigja Sólgarðaskóla og annast umsjón með sundlauginni eftir að tveir aðilar höfðu óskað eftir að taka Sólgarðaskóla á leigu til ferðaþjónustu sumarið 2017. Sú auglýsing skilaði ekki fleirum umsóknum. 

Fleiri fréttir