Sólúr afhjúpað á Skagaströnd

Á laugardaginn var nýtt listaverk eftir Magnús Pálsson afhjúpað á Skagaströnd. Um er að ræða verkið Sólúr, en það var fjármagnað af Listskreytingasjóði ríkisins. Sveitarfélagið Skagaströnd sá um kostnað við að koma því fyrir en verkið stendur á torgi í miðju bæjarins. Um 40 manns voru viðstaddir athöfnina.

Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Listskreytingasjóðs ríkisins, afhenti verkið og Magnús Pálsson afhjúpaði skjöld þar sem gerð er grein fyrir verkinu. Hann sagði einnig frá þeirri hugmyndafræði sem liggur að baki tilurð þess og greindi frá því hvernig stuðlabergsstöplarnir varpa skugga á eyktarmörkin eftir sólarstöðu.

Listaverkið er tilvísun í samspil tímans og sólargangsins þar sem gömul eyktarmörk eru í heiðri höfð. Verkið samanstendur af fjórum stuðlabergsstöplum sem eru sniðnir þannig til að rauf á milli þeirra getur varpað geislum sólar niður á eyktarmörk. Geisli sólar í hásuðri fellur t.d. á „hádegi“ sem er markað í stétt í kringum verkið. Á stuðlabergsdrangana er rist stórum stöfum: „Tíminn er eins og vatnið og vatnið er djúpt og kalt“.

Magnús Pálsson er þjóðkunnur listamaður og  hefur verið einn helsti þátttakandi í nýrri skilgreiningu á hugtakinu list í íslenskri myndlist, sem hugmyndasmiður og lærimeistari. Hugmyndaleg listsköpun hans hefur alltaf verið afar persónuleg. Hann hættir aldrei að koma á óvart með verkum sínum.

Magnús fór að láta að sér kveða í íslensku listalífi á árunum milli 1960 og 1970 eftir að hafa verið í listaskólum í Reykjavík og Austurríki og lært að búa til leikmyndir í Englandi. Á þessum árum urðu miklar breytingar í íslensku listalífi. Hann og aðrir listamenn sem þá voru að koma fram á sjónarsviðið litu öðrum augum á myndlistina en áður hafði verið gert og fóru allt aðrar leiðir. Þeir voru kallaðir nýlistamenn. Magnús Pálsson er einn af þeim listamönnum sem hefur notið meiri og meiri viðurkenningar, bæði innan lands og utan eftir því sem hann hefur lagt listinni til fleiri verk.

Fleiri fréttir