Solveig og Kristján bjóða sig fram til vígslubiskups

Solveig Lára Guðmundsdóttir, prestur á Möðruvöllum í Hörgárdal, og Kristján Björnsson, prestur í Vestmannaeyjum, hafa gefið kost á sér til vígslubiskups á Hólum. Framboðsfrestur rann út í gær en stefnt er að því að nýr vígslubiskup verði vígður á Hólahátíð í ágúst. 

Solveig hefur starfað sem prestur hjá Þjóðkirkjunni í 29, 17 ár í Reykjavík og Seltjarnarnesi og síðustu 12 ár á Möðruvöllum.

Verði ég kjörinn vígslubiskup á Hólum mun ég fyrst og fremst leitast við að hlúa að starfsfólki kirkjunnar og fjölskyldum þeirra svo og sóknarnefndum  og því góða starfi sem unnið er í söfnuðum landsins.  Ég finn að sú mikla reynsla sem ég hef af sálgæslu muni nýtast mér vel í því starfi,“ segir í tilkynningu frá Solveigu.

Solveig hefur verið á ferðalagi um landið undanfarnar vikur að heimsækja kirkjur og sóknarnefndir. Þá hefur hún farið um alla Austfirðina, Norðausturland og heimsótti Skagafjörð um sl. helgi. Næst hyggur hún á að fara um Húnavatnssýslurnar og Eyjafjörðinn. Hér má skoða heimasíðu Solveigar.

Kristján Björnsson hefur verið prestur í 23 ár en hann var vígður á Hólum árið 1989. Hann þjónaði í Vestur Húnavatnssýslu fyrstu níu árin, en síðustu 14 ár hefur hann verið sóknarprestur í Vestmannaeyjum

Með framboði mínu vil ég bjóða mig fram til stuðnings við kirkjulegt starf og þjónustu á öllum stöðum í umdæminu og enn frekari eflingar á Hólum. Það virkar einnig vel á mig að embætti biskupanna er í deiglu og það þarf að taka stöðu þeirra og hlutverk til umræðu,“ segir í tilkynningu Kristjáns. Hér má skoða heimasíðu Kristjáns.

Í tilkynningu frá biskupsstofu segir að enn sé möguleiki á að tilkynning um framboð sé í pósti og því ekki ljóst fyrr en síðar í vikunni hversu margir gefa endanlega formlega kost á sér.

Fleiri fréttir