Söngkeppni NFNV í kvöld
	feykir.is
		
				Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf	
		
					05.02.2016			
	
		kl. 13.02	
	
	
	Söngkeppni Nemendafélags FNV fer fram í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í kvöld, föstudaginn, 5. febrúar, og hefst kl. 20:00. „Ómissandi tónlistarskemmtun,“ segir um viðburðinn í auglýsingu.
Verð fyrir meðlimi nemendafélagsins og yngri en 16 ára er 1500 kr. en 2000 kr. fyrir aðra.
Posi verður á staðnum.
						
								
			
