Söngperlur Vilhjálms og Ellýjar Vilhjálms
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
02.03.2015
kl. 11.45
Í marsmánuði mun Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps halda tónleika þar sem kórinn flytur söngperlur Vilhjálms og Ellýjar Vilhjálms, ásamt hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar.
Fyrstu tónleikarnir verða í Blönduóskirkju fimmtudaginn 5. mars kl. 20:00. mánudaginn 9. mars verða tónleikar í Félagsheimilinu á Hvammstanga kl. 20:00, miðvikudaginn 11. mars í Frímúrarasalnum á Sauðárkróki kl. 20:00 og sunnudaginn 22. mars í Menningarhúsinu Miðgarði kl. 15:00.