Söngur um sólstöður
Hátíðartónleikar verða haldnir annan í jólum í Blönduósskirkju kl.16.00 og Hólaneskirkju kl. 20.30. þar sem fram koma 40 manna kór, fólk úr kirkjukórum Blönduóss, Þingeyra og Undirfellskirkna og Samkórnum Björk, kennarar Tónlistarskóla A-Hún. ásamt 9 einsöngvurum.
Á dagskránni eru jólasálmar og jólapopplög undir stjórn Skarphéðins H. Einarssonar en um undirleik sjá þau Sólveig Sigríður Einarsdóttir orgel, Þórður Haukur Ásgeirsson gítar, Höskuldur Sv. Björnsson gítar, Guðbjartur Sindri Vilhjálmsson trommur, Jón Ólafur Sigurjónsson bassi, Benedikt Bl. Lárusson hljómborð og píanó, Sigurdís Sandra Tryggvadóttir saxofón og Helga Dögg Jónsdóttir saxofón.
Alls munu níu einsöngvarar stíga á stokk en það eru þau Þórhalla Guðbjartsdóttir, Berglind Björnsdóttir, Nína Hallgrímsdóttir, Hilmar Örn Óskarsson, Anna Kristín Brynjólfsdóttir, Þórður Rafn Þórðarson, Guðmundur Karl Ellertsson, Lárus Blöndal Benediktsson og Þórhallur Barðason
Aðeins verður boðið upp á þessa tvenna tónleika og er miðaverð. kr. 2000 fyrir 16 ára og eldri
1000 fyrir 12-16 ára en frítt fyrir yngri en 12 ára.
Miðapantanir verða þriðjudaginn 21. des. og miðvikudaginn 22. des. í síma 4524340 frá kl.16-19 báða dagana en einnig er miðasala við innganginn.