Söngur um sólstöður í Blönduóskirkju í kvöld
Jólatónleikarnir Söngur um sólstöður verða haldnir í Blönduóskirkju í kvöld, föstudaginn 9. desember kl. 20:30. Á tónleiknum mun 35 manna kór flytja jólasálma og jólapopplög, ásamt nokkrum nemendum og kennarar úr Tónlistarskóla A-Hún., söngvarar og hljóðfæraleikarar.
Meðlimir kórsins koma úr kirkjukórum Blönduóss, Bergsstaða, Þingeyra og Undirfellskirkna og Samkórnum Björk. Stjórnendur eru Skarphéðinn H. Einarsson, Sólveig Sigríður Einarsdóttir og Sigrún Grímsdóttir.
Um undirleik sér Sólveig Sigríður Einarsdóttir á orgel og píanó, Skarphéðinn H. Einarsson á bassi, Kristófer Skúli Auðunsson á trommur, Gísli Geir Gíslason á slagverk, Friðrik Már Sigurðsson og Svanur Ingi Björnsson á gítar og Benedikt Bl. Lárusson á hljómborð og píanó.
Söngvarar eru Anna Kristín Brynjólfsdóttir, Amelía Ósk Hjálmarsdóttir, Hrafnhildur Björnsdóttir, Hrafnhildur Una Þórðardóttir, Steinunn Agnes Ragnarsdóttir, Guðmundur Karl Ellertsson og Stefán Ólafsson.
Miðaverð er 2.000 krónur fyrir 16 ára og eldri, 1.000 krónur fyrir 13-16 ára og frítt fyrir 12 ára og yngri. Miðasalan er við innganginn. Hægt verður að greiða með greiðslukortum.
Menningarráð Norðurlands vestra styrkir tónleikana.