Spáð dálítilli snjókomu eða slyddu í dag
Hálka eða hálkublettir eru á Norðurlandi. Norðaustan 8-13 m/s og dálítil snjókoma eða slydda er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en þurrt að kalla á morgun. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Austlæg átt, 8-13 m/s og sums staðar dálítil él, en yfirleitt bjartviðri V-lands. Frost víða 1 til 6 stig, en frostlaust við S- og A-ströndina.
Á miðvikudag:
Vaxandi austan- og norðaustanátt, hvassviðri eða stormur um kvöldið. Þykknar smám saman upp og fer að snjóa SA-lands, en slydda eða rigning þegar líður á daginn. Þurrt að kalla á V-landi. Hlýnandi veður og hiti 0 til 5 stig um kvöldið.
Á fimmtudag:
Austanhvassviðri eða -stormur með slydda eða snjókoma sunnan- og austantil, en annars úrkomulítið. Heldur kólnandi veður.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Norðaustlæg átt og víða él, en yfirleitt léttskýjað SV-lands. Harðnandi frost.