Spáð snjókomu eftir hádegi
Hægviðri og stöku él verður á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag. Spáð er snjókomu eftir hádegi, fyrst á annesjum. Norðaustan 10-15 síðdegis. Frost 0 til 7 stig. Él með kvöldinu.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Norðan og norðaustan 8-15 m/s. Snjókoma eða él um landið norðanvert og með suðurströndinni, en bjartviðri SV-lands. Frost 0 til 10 stig, mildast syðst.
Á fimmtudag og föstudag:
Norðaustan 5-13 m/s. Él fyrir norðan og einnig syðst á landinu, annars úrkomulítið. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Á laugardag:
Vaxandi austanátt með snjókomu en slyddu og síðar rigningu syðst. Yfirleitt þurrt á NA-verðu landinu. Frost 0 til 8 stig, en hlánar S-lands.
Á sunnudag og mánudag:
Austlæg átt, úrkomusamt og heldur hlýnandi veður.