Spáð þokubökkum við ströndina

Veðrið kl. 15 í dag, 13. júní, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/Vedur.is
Veðrið kl. 15 í dag, 13. júní, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/Vedur.is

Norðlæg átt og 3-10 m/s er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður skýjað með köflum og þokubakkar við ströndina. Hiti 7 til 15 stig, svalast á annesjum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Súld eða lítilsháttar rigning A-lands. Annars bjart með köflum, en líkur á skúrum síðdegis. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast V-til. 

Á fimmtudag og föstudag:

Suðlæg átt og víða smáskúrir. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig. 

Á laugardag og sunnudag:

Suðaustanátt og rigning með köflum, en þurrt á NA-verðu landinu. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast fyrir norðan.

 

Fleiri fréttir