Spáir slyddu seint í kvöld
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hægviðri og léttir smám saman til, suðaustan 8-13 m/s og slydda seint í kvöld. Hiti kringum frostmark. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er talsvert autt á Norðurlandi vestra, þó eru hálkublettir á Vatnsskarði. Hálka er víða á útvegum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Suðaustan 18-23 m/s, talsverð slydda eða rigning og hiti 0 til 7 stig, en snýst í suðvestan 13-18 með snjókomu og síðar éljum eftir hádegi og kólnar, fyrst V-til.
Á föstudag:
Suðvestan 15-23 m/s og éljagangur, hvassast á Vestfjörðum en úrkomulítið NA-til. Heldur hægari sunnanátt og dregur úr éljum um kvöldið. Hiti kringum frostmark.
Á laugardag:
Suðaustanhvassviðri eða -stormur og talsverð rigning A-til, en annars mun hægari og hleldur úrkomuminna. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast fyrir austan. Snýst í vestanhvassviðir með éljagangi um kvöldið og kólnar.
Á sunnudag:
Líkur á ört vaxandi sunnan- og suðaustanátt með rigningu og hlýindum.
Á mánudag:
Ákveðin suðvestanátt með éljum, einkum V-til og kólnandi veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir sunnanátt með vætu, einkum S- og V-lands og hlýnandi veður.