Spennandi mót framundan á Kaldármelum

Nú styttist óðum í að Fjórðungsmótið á Kaldármelum hefjist, en það verður haldið þann 3. júllí nk. Það stefnir í mjög gott mót enda eru mun fleiri hross skráð til leiks nú en fyrir fjórum árum. Tæplega 200 hross eru skráð í gæðingakeppni og yngri flokka, um það bil 140 hross í tölt T-1, tölt T-3 fyrir 17 ára og yngri, A- og B- flokk stóðhesta og 100 M fljúgandi skeið. Þá eiga 73 kynbótahross rétt til þátttöku í mótinu og hefur verið staðfest að rúmlega 50 hross mæta til dóms. Þá verða sýningar frá 10 ræktunarbúum á laugardeginum. Er margt góðra og þekktra hrossa á meðal þátttakenda á mótinu þannig að búast má við hörku keppni.

Það eru góð tjaldstæði í fallegu umhverfi á Kaldármelum, og stutt í sundlaugar í Borgarnesi og á hótel Eldborg í Laugargerði. Á svæðinu verður veitingasala á vegum veitingastaðarins Ship-O-hoj, sölubásar, kvöldvökur, skemmtiatriði og dansleikir bæði föstudags- og laugardagskvöld þannig að allir eiga að geta látið fara vel um sig og átt góða daga á þessum fallega stað.

Dagskrá mótsins er að finna á heimasíðu þess www.lhhestar.is og svo er síða á Facebook.

Fleiri fréttir