Spor í öfuga átt

Stjórn og trúnaðarráð Stéttarfélagsins Samstöðu telur ekki rétt að kjarasamningum verði sagt upp og að nauðsynlegt sé að þær launahækkanir sem samið var um komi til framkvæmda. Þetta kom fram á fundi Stjórnar og trúnaðarráðsins sem haldinn var þann 16. janúar sl.

Stjórn og trúnaðarráð Stéttarfélagsins Samstöðu sendi frá sér eftirfarandi ályktun:

Stjórn og trúnaðarráð Stéttarfélagsins Samstöðu krefst þess að ríkisstjórn Íslands standi við gefin fyrirheit sem fram koma í yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gerði við verkalýðshreyfinguna samhliða kjarasamningum 5. maí 2011. Það er harðlega gagnrýnt að greiðslur til atvinnulausra og öryrkja voru ekki hækkaðar eins og lofað var. Stjórnvöld gáfu fyrirheit um að vinna að jöfnun lífeyrisréttinda en ekkert hefur gerst í þeim efnum. Þvert á móti eru lagðar álögur á almennu lífeyrissjóðina, sem er spor í öfuga átt. 

 

Fleiri fréttir