Sprotafyrirtæki á Skagaströnd hannar og smíðar hátalara

Ævar Baldvinsson og Kristján Rafn Rudolfsson hjá Dimension of Sound. Mynd/BG
Ævar Baldvinsson og Kristján Rafn Rudolfsson hjá Dimension of Sound. Mynd/BG

Dimension of Sound er nafn sem, ef að líkum lætur, verður á allra vitorði í framtíðinni en um er að ræða íslenskt sprotafyrirtæki ungra manna sem hanna og framleiða hátalara. Fyrirtækið er staðsett á Skagaströnd en alls starfa þar átta manns. Blaðamaður Feykis heimsótti þá Ævar Baldvinsson og Kristján Rafn Rudolfsson, sem starfa hjá DOS.

„Ég og bróðir minn byrjuðum með hljóðkerfaleigu á Akureyri til að byrja með en svo bættist þetta við leiguna og við fórum að hanna og framleiða hátalara 2010-2011. Við fluttum til Skagastrandar fyrir tveimur og hálfu ári síðan,“ sagði Ævar, aðspurður um upphafið. Um ástæðuna fyrir því að þeir fluttu fyrirtækið til Skagastrandar sagði Ævar að á Skagaströnd væru allir svo opnir fyrir nýsköpun og svo hafi verið erfitt að finna hentugt húsnæði á Akureyri á ásættanlegu verði.

Hátalararnir sem drengirnir hjá DOS eru að hanna eru loks nú að fara í almenna framleiðslu. „Það hefur tekið mig mörg ár að hanna hljóðmyndina, svo ég sé fyllilega sáttur. Ég er kröfuharður en mjög sáttur í dag,“ sagði Ævar og brosti.

Ævar Baldvinsson og Kristján Rafn Rudolfsson eru í ítarlegu viðtali í Feyki sem kom út í dag. 

Fleiri fréttir