Spurt um lækkun flutningskostnaðar
BB segir frá því að Einar Kristinn Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins i Norðvesturkjördæmi, hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra um lækkun flutningskostnaðar. Einar Kristinn spyr hvort áform séu uppi um grípa til aðgerða sem stuðli að lækkun flutningskostnaðar. Einnig spyr hann hvort ætlunin sé að lækka gjöld og álögur á vöruflutninga til að stuðla að lægri flutningskostnaði á landsbyggðinni?
Á sama þingfundi lagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fram fyrirspurn til velferðarráðherra um niðurskurð mannafla heilbrigðisstofnana. Hann spyr hver sé áætlaður raun niðurskurður mannafla heilbrigðisstofnana árið 2011 og hver séu áætluð áhrif niðurskurðar sem var frestað til ársins 2012 á mannafla heilbrigðisstofnana, sundurliðað eftir starfsstéttum.