SSNV auglýsa eftir framkvæmdastjóra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) auglýsa eftir framkvæmdastjóra. SSNV er þjónustu- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og sér um mikilvæga sameiginlega málaflokka og hagsmunamál sveitarfélaga á starfssvæðinu. Umsóknarfrestur rennur út 7. júlí 2014.
Í fréttatilkynningu frá SSNV kemur fram að verkefni samtakana séu fjölbreytt og snúa að hagsmunum svæðisins, atvinnuþróun og rekstri sameiginlegra verkefna sveitarfélaganna sem að því standa.
„Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, sýnir frumkvæði og hefur góða hæfileika í mannlegum samskiptum. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði og æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á sveitarstjórnarmálum og rekstri. Höfuðstöðvar SSNV eru á Hvammstanga,“ segir í tilkynningunni.
Áhugasamir umsækjendur skulu senda inn umsókn merkt: „Framkvæmdastjóri“ fyrir 7. júlí til:
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Höfðabraut 6
530 Hvammstangi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Jónsson formaður SSNV í síma 8947479.