SSNV auglýsir eftir atvinnuráðgjafa

Samtök sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra auglýsa eftir atvinnuráðgjafa.

Starfssvið:

·        Samstarf með fyrirtækjum, stofnunum, einstaklingum og sveitarfélögum að atvinnuþróun, nýsköpun og ýmsum öðrum verkefnum á svæðinu.

·        Aðstoð við gerð úttekta, áætlana og önnur verkefni sem lúta að hagsmunum atvinnulífs og búsetuskilyrðum á Norðurlandi vestra

·        Þátttaka í samningsbundnum verkefnum og samstarfi innan lands og utan að þróunarverkefnum.

·        Undirbúningur nýrra verkefna og viðburða og ýmis önnur störf sem tengjast starfsemi SSNV atvinnuþróunar og rekstrareininga í landshlutanum.

Menntun og hæfniskröfur:

·        Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

·        Góð þekking, innsæi og áhugi á atvinnumálum og búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.

·        Góð hæfni í mannlegum samskiptum

·        Færni í ræðu og riti á íslensku og ensku, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.

·        Frumkvæði, metnaður og hagnýt starfsreynsla.

SSNV atvinnuþróun hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2013.

Nánari upplýsingar veitir Jón Óskar Pétursson framkvæmdastjóri SSNV, sími 455 2510, netfang: ssnv@ssnv.is.

Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt ferilskrá til Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, B.t. Jóns Óskars Péturssonar, Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga, merktar: “Atvinnuráðgjafi – Skagafjörður” eða á netfangið ssnv@ssnv.is

Samtök sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra segja frá þessu.

Fleiri fréttir