SSNV frestar þingi um mánuð vegna ágreinings

Þingi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV sem haldið var á Skagaströnd um síðustu helgi var frestað um mánuð þar sem ekki tókst að mynda stjórn eftir að breytingatillaga kom fram um kynjaskiptingu. Stjórnin er eingöngu skipuð karlmönnum, tveimur fulltrúum úr Skagafirði, tveimur úr Austur-Húnavatnssýslu og einum úr Húnaþingi vestra. Sigurjón Þórðarson hvetur Bjarna Jónsson til að sýna gott fordæmi og ganga úr stjórn.

-Þing SSNV sl. helgi var mjög gott. Það var mikil eining um ályktun um helstu hagsmunamál íbúa á Norðurlandi vestra, m.a. á sviði samgangna og heilbrigðismála og um að auka frelsi til handfæraveiða, segir Sigurjón Þórðarson varaformaður samtakanna en hann segir að þinginu hafi verið frestað vegna breytingatillögu á samþykktum SSNV um kynjakvóta í stjórn sem ekki náðist samstaða um. Segir hann að tillögurnar hefðu vel að merkja ekki fengið neina kynningu fyrir þingið. -Breytingin á samþykktum hefði falið í sér að Skagfirðingar og A-Húnvetningar þyrftu að hafa jafna kynjaskiptingu á sínum tveimur fulltrúum sem héruðin eiga í stjórn. V-Húnvetningar sem voru mjög áfram um samþykkt tillögunnar voru hins vegar algerlega óbundnir af henni, segir Sigurjón.

Ef breytingatillögurnar hefðu náð fram að ganga, segir Sigurjón að þá hefði það þýtt að annar þeirra karlkyns fulltrúa sem sveitarstjórn Skagafjarðar hafði nú þegar kjörið til stjórnarsetu í SSNV, til fjögurra ára, væri ekki lengur gjaldgengur. -Ef ætlunin er að breytingarnar taki gildi nú þegar liggur beinast við að fulltrúi Vg, Bjarni Jónsson, gangi úr stjórninni enda hefur flokkurinn lengi gengið til kosninga undir gunnfána femínisma og ætti að sýna gott fordæmi. Sigurjón bendir á að ef samkomulag verður um að setja umrædda kynjakvóta í stjórn SSNV liggur beinast við að það gildi frá og með næsta kjörtímabili sveitarstjórna þannig að ljóst verði í upphafi hvaða leikreglum þarf að fara eftir og þeim ekki breytt á miðju kjörtímabili.

Fleiri fréttir