SSNV undrast framgöngu Akureyrar í umfjöllun um Svínavatnsleið

Á stjórnarfundi SSNV sem haldinn var Varmahlíð í síðustu viku fóru fram umræður um nýframlagða þingsályktunartillögu  nokkurra þingmanna  um lagningu Svínavatnsleiðar sem og framgöngu Akureyrarbæjar varðandi sömu veglagningu sem lesa má í fundargerð bæjarráðs Akureyrarbæjar frá 10.mars 2011. Stjórnininni finnst framganga Akureyrarbæjar í málinu ámælisverð.

Eftirfarandi bókun var samþykkt á fundinum:
Stjórn SSNV  ítrekar fyrri ályktanir sem og ályktun 18. ársþings SSNV um að lögum samkvæmt fara sveitarfélögin með skipulagsvaldið. Stjórnin skorar á öll sveitarfélög landsins að standa saman vörð  um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga í skipulagsmálum . Stjórnin beinir því til alþingismanna að leggjast gegn öllum áformum um lagasetningar sem ganga gegn þeim rétti. Stjórnin lýsir undrun á framgöngu Akureyrarbæjar í umfjöllun um lagningu svonefndrar Svínavatnsleiðar/Húnavallaleiðar sem gengur freklega gegn rétti og hagsmunum viðkomandi sveitarfélaga og lesa má í fundargerð bæjarráðs Akureyrarbæjar frá 10. Mars 2011.

Fleiri fréttir