Eftir tvær vikur safnast 40 vestnorrænir, norskir og danskir stjórnmála-, háskóla- og fræðimenn saman í Ilulissat á Grænlandi á árlegri þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins til að ræða „stöðu Vestur-Norðurlanda í alþjóðasamfélaginu, sértaklega hvað varðar Norðurskautssvæðið og þær breytingar sem þar hafa orðið“.
Breytingar á Norðurskautssvæðinu og áhrif þeirra á Vestur-Norðurlönd
Á ráðstefnunni verða m.a. kortlagðir sameiginlegir hagsmunir Færeyja, Grænlands og Íslands í ljósi þeirra breytinga sem afleiðingar umhverfis- og loftlagsbreytinga síðustu ára og ártuga hafa haft í för með sér fyrir svæðið og raunar alþjóðakerfið allt.
Ástæða fyrir vali ráðsins á þessu þema er, að verulegar breytingar hafa átt sér stað á umhverfi og veðurfari á Vestur-Norðurlöndum undanfarna áratugi. Þessar breytingar hafa haft ýmsar afleiðingar eins og auknar siglingar á svæðinu sem og aukin efnahagsleg umsvif, ekki síst í tengslum við nýtingu á þeim auðlindum sem þar er að finna. Meðal annars af þessum ástæðum sýna nú sífellt fleiri ríki svæðinu aukinn áhuga.
Staða Vestur-Norðurlanda í alþjóðakerfinu er því í mikilli þróun. Mikilvægt er að löndin þrjú tryggi sér miðlægt hlutverk í pólitískum ákvörðunum varðandi málefni norðurslóða og Norður-Atlantshafs og verði þannig betur í stakk búin til að vernda eigin hagsmuni. Það er von ráðsins að ráðstefnan stuðli að því.
Þá verður jafnramt kannað hvort sameiginleg stefna Vestur-Norðurlanda varðandi ákveðna málaflokka á þessu sviði gæti styrkt stöðu landanna þriggja og þannig áhrif þeirra á þróun svæðisins.
Fyrirlesarar
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verða Alyson Bailes aðjúnkt við stjórmálafræðideild HÍ og gestaprófessor við Evrópuháskólann í Brugge, Ágúst Þór Árnason deildarformaður lagadeildar Háskólans á Akureyri, Birger Poppel rannsóknarstjóri við verkefnið Lífshættir og lífsgæði fólks á norðurslóðum SLiCA við Háskóla Grænlands, Gestur Hovgaard, lektor i samfélagsfræðum við Háskóla Færeyja, Lene Kielsen Holm rannsóknarstjóri hjá Loftlagsmiðstöð Náttúrufræðistofnunar Grænlands, Margrét Cela sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum og doktorsnemi við Háskólann í Lapplandi, dr. Níels Einarsson, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, dr. Rasmus Ole Rasmussen lektor við Háskólann í Hróarskeldu og Sven-Roald Nystø MPhil i heimskautafræðum, ráðgjafi við Árran lulesamísku miðstöðina í Noregi.
Frekari upplýsingar
Vestnorræna ráðið er formlegur samstarfsvettvangur þinga Færeyja, Grænlands og Íslands.
Í forsætisnefnd ráðsins sitja formaðurinn Henrik Old lögþingsmaður ásamt varaformönnunum Josef Motzfeldt forseta Grænlandsþings og Ólínu Þorvarðardóttur alþingismanni.
Í Íslandsdeild ráðsins sitja auk Ólínu Þorvarðardóttur þingmennirnir Árni Johnsen, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Þór Saari.