Staðan á óveðurssvæðum um hádegi
Þó versta veðrið sé nú afstaðið, gengur norðanáttin mjög hægt niður. Búast við hvassviðri eða stormi fram eftir degi og strekkingur eða allhvass vindur á morgun. Veðurhorfur á Norðurlandi vestra er norðan 15-23 m/s og snjókoma, en 13-20 seinnipartinn. Norðan 10-18 eftir hádegi á morgun og éljagangur. Hægari annað kvöld og úrkomuminna. Frost 1 til 6 stig.
Færð á vegum 30. desember 2012. Mynd: Vegagerðin.is
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er hálka í Húnavatnssýslum og skafrenningur. Ófært er frá Hofsósi út í Fljót en síðan er Siglufjarðarvegur lokaður utan Fljóta vegna snjóflóðahættu, og Ólafsfjarðarmúli sömuleiðis. Ófært er svo á Vatnsskarði, yfir Þverárfjallsveg, einnig er ófært á Öxnadalsheiði en unnið er að opnun.
Almannavarnadeild vekur athygli á því að þótt mesti veðurhamurinn sé genginn yfir, þá er enn vont veður á Vestur og Norðurlandi. Ekki má búast við að veðrið gangi niður fyrr en uppúr hádegi á morgun. Víða er mokstur hafinn, en lítið þarf til þess að færð spillist á ný. Fólki er ráðlagt vera ekki á ferð nema brýna nauðsyn beri til.
Aðgerðir björgunarsveita
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa verið á ferðinni í nótt við að aðstoða samborgarana vegna veðurs sem hefur verið að ganga niður með morgninum.
Á heimasíðu Landsbjargar segir að þó að mikið hafi verið að gera hjá björgunarsveitunum síðastliðna sólarhringa þá hafa þær opnað flugeldasölustaði sína og er salan komin á fullt. „Búist er við að lægi á gamlársdagskvöld og spáð er flottu flugeldaveðri á öllu landinu,“ segir á heimasíðunni.