Staðsetning þjónustustarfa
Landshlutasamtök sveitarfélaga og atvinnuþróunarfélög í samstarfi við Byggðastofnun könnuðu staðsetningu ríkisstarfa árið 2013. Þessa uppfærslu jók Byggðastofnun við á árinu 2014 þannig að hún nær til allra stofnana ríkisins og hlutafélaga sem ríkið á að meirihluta og til þéttbýlisstaða á höfuðborgarsvæðinu.
Niðurstöður kannana á staðsetningu þjónustutengdra starfsþátta ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja eru settar fram á skrám og á kortum. Sérstök skrá og tilheyrandi kort er fyrir ríkisstarfsemina, sértök skrá fyrir þjónustu fyrirtækin og sérstök fyrir þjónustu sveitarfélaga. Á tilheyrandi kortum er hins vegar starfsemi sveitarfélaga og fyrirtækja sett fram saman. Ástæða þess er að sums staðar eru starfsþættir reknir af fyrirtækjum en annars staðar af sveitarfélögum.
Á skránum yfir staðsetningu starfsþátta má greina stóru línurnar, hvaða staðir hafa marga starfsþætti, en stóru línurnar á kortunum eru hvernig þessir starfsþættir dreifast um landið.
Af skránni yfir ríkisstarfsemina sést hve Reykjavík skarar fram úr sem þjónustustaður ríkisins og greina má að Akureyri skorar hátt í samanburði við aðra þéttbýlisstaði en Reykjavík, bæði hvað varðar þjónustu á landshluta- og landsstigi. Þá má einnig greina Ísafjörð, Sauðárkrók, Egilsstaði og Selfoss frá hinum og þá einkum með þjónustu á landshlutastigi. Athyglisvert er að staðsetning ríkisþjónustu dreifist meira á þéttbýlisstaði Vesturlands, Norðurlands vestra og Suðurlands en á þéttbýlisstaði Vestfjarða, Austurlands, Norðurlands eystra og þó sérstaklega höfuðborgarsvæðisins.
Á kortinu yfir staðsetningu ríkisstarfseminnar sést vel hversu rauði liturinn er sterkur í Reykjavík, hve margir starfsþættir ríkisins fyrir landið allt hafa þar aðsetur, og hve fáir eru á austurhluta landsins. Á skránni yfir starfsemi sveitarfélaga sést að hún er víðtæk og aðsetur hennar er víðast á stærri stöðum sveitarfélaganna en veitt víðar með heimsóknum eða með aðild sveitarfélags að rekstri. Upplýsingar fengust ekki um starfsemi Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veita Árni Ragnarsson, sérfræðingur á þróunarsviði og Snorri Björn Sigurðsson forstöðumaður þróunarsviðs.
Fréttatilkynning