Starfsmenn óskast í Blönduskóla
Blönduskóli auglýsir eftir starfsmönnum, um er að ræða þrjú hlutastörf við Blönduskóla; tvo stuðningsfulltrúa til aðstoðar í kennslutímum sem að auki fylgja nemendum í frímínútum og á milli kennslustaða og einn skólaliða til aðstoðar á Skóladagheimili. Störfin eru mjög fjölbreytt þar sem áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við fullorðna og börn.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 14. ágúst og umsóknum skal skila til skólastjóra eða á netfangið thorhalla@blonduskoli.is.
Nánari upplýsingar veitir Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri í síma 452-4147 eða 892-4928. Húni.is segir frá þessu.