Starfsnám í Fjarmenntaskólanum
Sjö framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ákveðið að bjóða sameiginlega upp á fjarnám með áherslu á starfsnám. Um er að ræða Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólann á Tröllaskaga, Framhaldsskólann á Húsavík, Menntaskólann á Egilsstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.
Í vor verður áhugi kannaður á námi á 15 námsbrautum og í kjölfarið tekin ákvörðun um hvað verður í boði á haustönn. Námið fer fram með stuttum staðbundum lotum og í fjarnámi. Miðað er við að hægt sé að taka námið samhliða vinnu. Markmið skólanna er einkum að auka framboð á framhaldsskólanámi á starfssvæði skólanna og á landinu öllu með hagkvæmum hætti. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni Fjarmenntaskólinn.is.