Starfstöð Vinnumálastofnunar á Skagaströnd lögð niður?

Svo gæti farið að starfsemi Vinnumálastofnunar á Skagaströnd verði lögð niður, sem yrði reiðarslag fyrir sveitarfélagið. Blóðugur niðurskurður upp á um 30% er framundan hjá stofnuninni. „Þeir sem minna mega sín eru niðurlægðir og á þeim níðst,“ segir formaður stéttarfélags í almannaþjónustu. Sagt var frá þessu í fréttum Stöðvar 2 á mánudagskvöldið.

Rúmlega 20 manns starfa hjá Vinnumálastofnun á Skagaströnd. Verði af niðurskurði munu um 5% íbúa Skagastrandar missa vinnuna. Það samsvarar ef 6.000 manns í Reykjavík myndu missa vinnuna, að því er fram kemur í fréttinni.

Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að rekstrarútgjöld Vinnumálastofnunnar lækki um rúmlega 340 milljónir á næsta ári. Það þýðir niðurskurð upp á tæp 30%. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunnar, staðfesti við fréttastofu Stöðvar 2 að allt bendi til þess að af stórfelldum niðurskurði verði. 40 manns munu að öllum líkindum missa vinnuna, þar af flestir á landsbyggðinni.

Verði af niðurskurði þarf að öllum líkindum að loka greiðslustofu Vinnumálastofnunnar á Skagaströnd. Magnús S. Jónsson, sveitarstjóri á Skagaströnd, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að það yrði gífurlegt högg fyrir sveitarfélagið fari svo að starfsemi Vinnumálastofnunnar í sveitarfélaginu yrði lögð niður. Allt sé nú gert til telja stjórnvöldum hughvarf.

Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, vandar ríkisstjórninni ekki kveðjurnar vegna málsins og segir að þarna sjáist bakvið sparigrímu stjórnvalda inn í steingert andlit.

Fleiri fréttir